Leitum ekki langt yfir skammt

Mér hlýnaði óneitanlega um hjartaræturnar að lesa þessa frétt um stuðning Færeyinga. Bjóðum Færeyingum í heimsókn og höldum góða veislu fyrir þessa ágætu þjóð. Þeir kunna að forgangsraða

 

kv
TG


mbl.is Vinarkveðja frá Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sit hér og skæli yfir þessari frétt. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hversu mikið ég hef tekið nærri mér atburði og fréttir undanfarna daga, áttaði mig engan veginn á því fyrr en tárin byrjuðu hreinlega að streyma niður vangana við þessa vinakveðju frá Færeyingum.  Ég græt vegna hlýju og þakklætis í þeirra garð, þetta bjargaði deginum :o)

Ótrúlegt hvað eitt bros (frá vinum okkar í Færeyjum í þessu tilfelli) getur dimmu í dagsljós breytt!

Þórunn (ókunnug þér kæri bloggari) (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband